• Dæmi um Happ kvöldverð
    Happ kvöldverður er tilvalinn valkostur þegar þú vilt bjóða til þín gestum, til dæmis bjóða í sushi eftir leikhús. Eða ef vinnufélagar vilja hittast og fá sér hollan og bragðgóðan pinnamat eða léttan kvöldverð.
  • Dæmi um Happ pinnamat
    Happ pinnamatur er tilvalinn fyrir þá sem vilja fá holla og bragðgóða smáréttarbakka eða sushi, samlokur, hollt snakk og gómsætt.
  • Heilbrigt mataræði
    Léttari lund, dýpri svefn, hreinni og bjartari húð, tærari augu og minni stoðkerfisverkir...
  • Dæmi um Happ hádegisverð
    Happ hádegisverður er tilvalinn valkostur þegar þú vilt kalla saman fólk td. í heimahús eða á vinnustað.

Algengar spurningar

Ef þú hefur einhverjar frekari spurningar en koma hér fyrir neðan, ekki hika við að senda okkur tölvupóst á happ@happ.is og við munum svara eins fljótt og við getum.

  • Hvernig panta ég matarpakka hjá Happ?
    • Þú getur pantað hér eða sent okkur póst á happ@happ.is
  • Hvenær get ég byrjað?
    • Matarpakka Happ þarf einungis að panta með sólarhringsfyrirvara.
  • Hvað mælið þið með að ég panti marga daga í byrjun?
    • Það tekur líkamann tíma að aðlagast breytingum í mataræði og lífsstíl.  Ef lífsstíll þinn einkennist af skyndibitafæði, kyrrsetu og koffínfylltum drykkjum þá gæti tekið líkama þinn nokkra daga að upplifa áhrifin af hreina Happ matnum. Við mælum því með áskrift í lágmark 2 vikur til þess að þú finnir áhrif breytts mataræðis á líðan og heilsu.
  • Þarf ég að skrá mig í lágmarkstíma?
    • Nei. Þú getur keypt staka daga eins og þér hentar.
  • Get ég pantað einn kvöldverð eða einn hádegisverð?
    • Já.  Hægt er að panta aukaskammta og vörur með sólarhringsfyrirvara.  Þú getur alltaf prófað að hringja með skemmri fyrirvara en við lofum engu…
  • Hvar er maturinn afhentur?
    • Maturinn er afhentur hjá Happ á Höfðatorgi.  Hægt er að fá matinn sendan innan höfuðborgarsvæðisins gegn vægu sendingargjaldi.
  • Hvað á ég að gera við umbúðirnar þegar ég er búin að borða matinn?
    • Umbúðirnar eru einnota en Happ er umhverfisvænt fyrirtæki og við tökum glöð á móti notuðum umbúðum og flokkum og skilum
  • Keyrið þið út matinn í öll hverfi í Reykjavík?
    • Já - en hafðu samband við Happ því það fer eftir fjölda skammta og fjarlægð hver sendingarkostnaðurinn er.
  • Ég er með fæðuofnæmi, hvernig á ég að bera mig að?
    • Láttu okkur vita og við finnum út í sameiningu hvað hentar þér.
  • Á ég að borða matinn þótt ég sé ekki svangur?
    • Já.  Matarpakkar Happ eru úthugsaðir og hannaðir til að halda blóðsykri í jafnvægi allan daginn til þess að þú haldir orku og gleði og finnir sjaldan til svengdar.
  • Hvað má ég borða og drekka aukalega með matarpökkunum?
    • Happ matarpakkar eru lítið námskeið í sjálfu sér og þér er óhætt að bæta við því sem líkist matnum í Happ pökkunum s.s. fersku grænmeti, ávöxtum. Alltaf er mælt með að þú drekkir mikið af vatni yfir daginn.  Að auki eru græn te og önnur koffínlaus te góð.
  • Hvenær sé ég árangur af heilbrigðu mataræði?
    • Það fer eftir þínum fyrri lífsstíl hversu fljótt þú finnur árangur en flestir finna jákvæðar breytingar eftir um 5-10 daga.