Námskeið
Viltu læra meira um hvaða áhrif hollur matur hefur á heilsu þína og líðan? Hjá Happ getur þú pantað námskeið fyrir þig og þína þegar þér hentar.
Á námskeiðunum útbúum við hollar veitingar sem við njótum saman á meðan við ræðum svör við sáraeinföldum spurningum eins og…
- Viltu lifa heilbrigðara og lengra lífi?
- Hver ber ábyrgð á þinni heilsu?
- Hvað er hráfæði?
- Hráfæði sem meðferðarform eða lífsstíll?
- Eru orsakir 67% krabbameinstilvika að finna í lífsstíl?
- Viltu komast út úr vítahring sykurs og annarrar óhollustu?
- Hafa langvinnir sjúkdómar með ólík einkenni sameiginlega rót og þá sameiginlega lækningu?
- Veistu hve mikil áhrif þú getur haft á erfðaefni þitt?
- Getum við komið í veg fyrir og jafnvel læknað þunglyndi, athyglisbrest og alzheimer með einföldum lífsstílsbreytingum?
- Hver er lykillinn að 100 ára hreysti?
Fyrirlestrar
Hjá Happ bjóðum við uppá fyrirlestra um heilbrigði og lífsstíl.
Dæmi um fyrirlestra eru:
- Mataræði og lífsstíll hefur áhrif á krabbamein
- Er mjólk góð?
- Hvernig snúum við sykursýki við?
- Lækkaðu blóðþrýstinginn með heilbrigðum lífsstíl






