Happ býður upp á nokkrar gerðir matarpakka sem hjálpa þér að njóta góðrar heilsu. Hægt er að panta matarpakkana í áskrift í ákveðinn fjölda daga, eða kaupa staka daga. Einnig geturðu pantað auka hádegis- eða kvöldverð fyrir makann, vinina eða einhvern annan sem þér þykir vænt um. Matarpakkana er hægt að sækja til okkar alla virka daga eða fá þá senda til þín í kringum hádegið.
Til að sjá áþreifanlegan árangur og finna fyrir bættri líðan mælum við með að fólk kaupi að minnsta kosti 2 vikur.
Happ matarpakkar…
- eru búnir til úr besta fáanlega hráefni á hverjum tíma
- innihalda alla þá næringu sem þú þarft yfir daginn
- eru bragðgóðir, spennandi og tímasparandi
- stuðla að bættri heilsu og nýjum matarvenjum á auðveldan hátt
“Það er ekkert mál að borða hollan mat þegar hann er jafn gómsætur og Happ maturinn er og grennast og verða orkumeiri í leiðinni”. Bryndís Emilsdóttir



