Happ veislur er skemmtileg leið til að hóa fólki saman í hollan og gómsætan málsverð án fyrirhafnar. Við leggjum okkar metnað í að bjóða upp á veislur þar sem hollusta og gott bragð fara saman.
Happ veislur geta til dæmis verið…
- hádegisverður með vinum
- fundir hjá fyrirtækjum
- fyrirlestrar
- kvöldverður í heimahúsi
- lautarferðir og nestispakkar
- stórafmæli
- útskriftarveislur
- brúðkaupsveislur
- fermingarveislur…
“Bauð vinahópnum heim í Happ pinnamat og sushi eftir leikhúsferð, gómsætt gott, einfalt og þægilegt. Eigum eftir að endurtaka þetta.” Halldóra Traustadóttir
“Happ maturinn er punkturinn yfir i-ið á góðum námskeiðum, fyrirlestrum eða fundum á vegum Háskólans í Reykjavík.” Eva Þengilsdóttir




