HaPP dagar á Hótel Hengli

Viltu bæta heilsuna og upplifa vellíðan? Viltu að nýja árið verði upphafið að nýjum lífsstíl?( sem getur breytt öllu fyrir þig?) Slástu þá í för með fagfólki sem mun leiða þig í allan sannleikann um nýjar leiðir að betra lífi.

Þann 27. janúar 2012 leggjum við af stað í vegferð sem færir þér betri heilsu og lykil að hollari lífsvenjum. Dvölinni lýkur 29. janúar en ævintýrið mun fylgja þér.

Þrír sæludagar

Þátttakendur koma og dvelja í þrjá daga á Hótel Hengli. Umhverfið er eins fallegt og það getur orðið hér á landi. Sjá nánar á www.hotelhengill.is.

Með í för eru margir af helstu sérfræðingum á sínu sviði en leiðbeinendur eru;

  • Þórdís Sigurðardóttir - eigandi Happ og heilsuráðgjafi frá IIN í New York
  • Lukka Pálsdóttir - eigandi Happ, höfundur bókarinn Happ Happ Húrra. Lukka er líka sjúkraþjálfari og hefur áralanga reynslu áhrif mataræðis á langvinnra sjúkdóma
  • Tolli Morthens sér um íhugun og deilir með okkur reynsla.
  • Gunnhildur Emilsdóttir sér um matinn en líklega eru fáir hér á landi með meiri reynslu í að búa til hollan mat.

Markmiðasetning er í höndum Kristjáns Vigfússonar en hann er kennari í Háskólanum í Reykjavík: Hvernig setjum við okkur markmið og náum að halda þeim?

Útgeislun og gleði

Markmið ferðarinnar er að þátttakendur öðlist vellíðan á líkama og sál. Meðan á dvölinni stendur kynnist þú þeirri einstöku upplifun sem á sér stað þegar borðaður er hollur matur og ástunduð góð hreyfing. Á hverjum degi verður farið í jóga og góðar gönguferðir. Þá er tilvalið að fara í heita pottinn og hægt er að fara í nudd.

Vitneskja

Haldnir verða fyrirlestrar tengdir heilsu og hamingju. Lagt er upp með að fræða þátttakendur sem mest þannig að þeir skilji þær breytingar sem eiga sér stað á bættri líðan og aukinni orku.

Haldnir verða fyrirlestrar um næringu og mismunandi áhrif mataræðis á andlega og líkamlega vellíðan. Fræðslan er styrkjandi og uppbyggileg og hugsuð sem veganesti á vegferð þátttakenda að betra lífi.

Næring

Leyndardómar Happ eldhússins verða með í för. Boðið verður eingöngu upp á hráfæði; fallegt, glaðlegt, litríkt og umfram allt næringarríkt. Hráfæði er fæði sem byggir á grænmeti, ávöxtum, fræjum og ýmsum hnetum. Hráefnið er aldrei hitað yfir 47 C°. Það er gert til að ensímin í hráefninu haldist óskert. Þannig verður hollustan sem mest og líkaminn nýtir næringuna úr matnum betur. Möguleikar hráfæðis eru óþrjótandi. Það mun koma skemmtilega á óvart hversu girnilegt og bragðgott hráfæði er. Þátttakendur fá leiðsögn um hráfæðisgerð þannig að hægt verði að bjarga sér þegar heim er komið.

Innifalið í verði

  • Gisting
  • Fullt fæði
  • Fyrirlestrar og fræðsla
  • Gönguferðir með leiðsögn
  • Jóga og íhugun
  • Skemmtilegur félagsskapur

Við hlökkum mikið til að hitta þig. Við munum gera allt sem við getum til að gera ferðina ógleymanlega. Með ykkur í för verður þetta bara gaman.

Nánari upplýsingar: Þórdís - 777 3008