Hugmyndafræðin

Við höfum sett okkur það markmið að bæta heilsu og efla lífsgæði viðskipavina okkar og leitum allra leiða til að ná því markmiði okkar. Við trúum því að leiðin að heilbrigði og heilsutengdum lífsgæðum liggi í góðri og hollri fæðu, reglulegri hreyfingu og sálarró. Hjá HaPP er áhersla lögð á gæði og virkni fæðunnar á líkamann til að fyrirbyggja og meðhöndla lífstílssjúkdóma.

Við ætlum að vera leiðandi í fræðslu um heilbrigði og starfsfólk okkar býr yfir mikilli þekkingu á þessu sviði. Við byggjum starfsemi okkar á reynslu, menntun og sífelldri þekkingarleit.

Við erum óhrædd við að prófa nýja og spennandi hluti, leyfum listrænni tjáningu að njóta sín og gerum þær kröfur til matarins að hann sé í senn spennandi fyrir augað og bragðlaukana og styrki og bæti heilsuna. Við leggjum metnað okkar í afburðaþjónustu og það veitir okkur ánægju að uppfylla óskir viðskiptavina okkar.