Langar þig að vita meira um áhrif mataræðis á vellíðan og heilbrigði? Við bjóðum bæði einstaklingum og hópum upp á ýmsar leiðir til þess að fræðast um heilbrigði.

Matargerð og næring í mat

Á þessu námskeiði lærir þú hvernig hægt er að elda enn hollari og betri mat eftir þeim aðferðum sem við hjá HaPP höfum tileinkað okkur. Þú færð góðan skilning á mismunandi næringu í helstu matvælum og heildrænum áhrifum matar á heilsu og vellíðan.

Kennd verður tækni við að útbúa mat þannig að hann haldi sem best öllum vítamínum, steinefnum og bragði ásamt því rætt um mikilvægi þess að undirbúa matreiðsluna vel.
Við förum yfir það hvaða salt á að velja, hvernig fitu og fjöllum svo um kosti og galla ólíkra sætuefna. Í fyrirlestrahlutanum verður farið yfir mismunandi næringa- og orkuþörf hjá einstaklingum. Við fræðumst um mismunandi mataræði og tengsl þess við öldrun líkamans, líkamsþyngd, hvaða efni eru talin krabbameinsvaldandi og fleira. Þá ræðum við mikilvægi hreins mataræði, hvað það er sem er óhollt við unnin matvæli og spyrjum okkur hvort lífrænt ræktað sé betra en annar matur.

Námskeiðið er bæði kennsla og fræðsla og síðan fá allir að taka þátt í að elda mat sem er borðaður í lokin. Að námskeiði loknu munt þú eiga auðveldara með að ákveða hvað skal hafa í matinn og hafa hann enn fjölbreyttari og betri en áður.

Innifalið er þrírétta máltíð, fræðsla og uppskriftir. Síðast en ekki síst færðu að upplifa gleðina sem felst í því að læra að elda hollan og góðan mat í góðum félagsskap, ásamt því að verða enn fróðari um heilbrigði !

Námskeiðið er í höndum Þórdísar og Lukku, eigenda HaPP ásamt Ernu Stefánsdóttur heimilsfræðikennara og sérstaks fagurkera sem hefur fylgt HaPP frá upphafi.

Næsta námskeið: Hafið samband við okkur! Erum að skipuleggja næsta námskeið.
Tilvalið fyrir saumaklúbbinn, vinahópa og/eða einstaklinga
SKRÁNING: happ@happ.is

Námskeiðið kostar 13.900 kr.

Við höldum fyrirlestra um margt það sem vekur áhuga okkar og við erum ávallt til í að deila með öðrum. Hvort sem er að fjalla um heilbrigt mataræði eða hvernig á að útbúa mat - Hafið samband við okkur!

Sérstakir fyrirlestrar

HaPP er í samstarfi við stuðningsfélagið KRAFT og Ráðgjafamiðstöð Krabbameinsfélagsins þar sem við höldum reglulega fyrirlestra. HaPP býður fyrirlestra á sviði næringar og heilsu með sérstaka áherslu á tengingu við lífsstílssjúkdóma.

Hægt er að panta einstaklingsviðtöl hjá heilsuráðgjafa HaPP. Við erum ekki öll eins og því hentar ekki sama ráðgjöf öllum. Heilsuráðgjafi HaPP getur hjálpað þér að finna þína einstöku leið til að ná árangri og veitt þér bæði stuðning, fræðslu og aðhald. Þú skuldbindur þig í 6 mánuði og hittir heilsuráðgjafann þinn tvisvar i mánuði og við lofum þér árangri.

Verð 75.000 kr fyrir 6 mánaða einkaráðgjöf

Skráning á happ@happ.is