Um Happ
Happ hefur það metnaðarfulla markmið að stuðla að auknu heilbrigði Íslendinga.
Nafnið Happ stendur fyrir “healthy and pure products“. Nafnið vísar til þess matar sem í boði er hjá Happ en hann er unninn úr hreinu og fersku hráefni sem er það besta fyrir heilbrigði okkar.
Happ…
- stuðlar að vellíðan og heilbrigði
- sparar þér tíma og fyrirhöfn
- hjálpar þér að ná settum markmiðum
- bætir líf þitt!
Happ hefur fyrst og fremst þína vellíðan í huga, til þess að þú getir borðað hollan og góðan mat og slakað betur á í amstri dagsins. Happ á erindi við þig hvort sem þú ert að æfa, byrja í átaki eða bara almennt að hugsa um vellíðan og heilsu. Við notum allt nýjasta og ferskasta hráefnið og framleiðum hollan og bragðgóðan mat sem færir þér gleði og vellíðan.
Hjá Happ getur þú fengið holla og gómsæta matarpakka fyrir allan daginn, vikurnar eða lengur, hollan og góðan mat í heimboð og veislur, fyrirlestra, námskeið og fleira sem þér dettur í hug.
Þú getur sótt vöruna til okkar alla virka daga eða fengið hana senda til þín. Matarpakkarnir eru tilbúnir til afhendingar kl. 11.30.
Hollur og gómsætur matur
Hollur matur getur verið allt í senn, spennandi, fallegur og bragðgóður kostur.
Happ matur er ekki framleiddur með geymsluþol í huga heldur leggjum við metnað okkar í að nota ferskasta og besta hráefni sem fáanlegt er hverju sinni.
Stórar yfirgripsmiklar rannsóknir sýna skýr tengsl á milli neyslu ákveðinna fæðutegunda og tíðni sjúkdóma. Hjá Happ höfum við niðurstöður þessara rannsókna að leiðarljósi við samsetningu allra matseðla okkar og vörutegunda. Allar okkar vörur stuðla að heilbrigði þess sem þeirra neytir. Smelltu hér til að lesa meira.
Happ matur…
- gleður augað, bragðlaukana og frumur líkamans
- er stútfullur af góðum næringarefnum
- stuðlar að heilbrigði þess sem hans neytir
- er án hvíts sykurs, hveitis, litarefna og annarra aukaefna svo sem msg
- er byggður á rannsóknum
Upphafið að Happ
Eftir að hafa breytt mataræði mínu og fjölskyldu minnar til hins betra og upplifað í kjölfarið meiri orku, framkvæmdagleði og vellíðan fannst mér nauðsynlegt að deila þeirri líðan með fleirum. Ég stofnaði því fyrirtækið Happ sem bíður uppá lausnir fyrir þá sem vilja lifa heilbrigðu lífi, takast á við vandamál og kvilla með breyttu mataræði og njóta þeirra lífsgæða sem heilbrigður lífsstíll hefur uppá að bjóða. Eftir nám í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands vann ég um tíma við einkaþjálfun og sá þá aftur og aftur hve mikil áhrif bætt mataræði hafði á árangur og heilsu viðskiptavina minna. Mér þótti hins vegar aðgengi að tilbúnum hollum mat ekki nægilega gott og ákvað að bæta úr þeirri þörf og stofnaði því Happ. Við leitumst við að svara þörfum um heilbrigðan en jafnframt góðan sælkeramat. Við leitum allra leiða til að gera heilbrigðan og hreinan mat aðgengilegan fyrir þig.
Með kærri kveðju, Unnur Guðrún Pálsdóttir (Lukka)





