Heilbrigt mataræði

Happ matarpakki inniheldur allar máltíðir dagsins
- Graut - borða að morgni næsta dags
- Salat eða annan grænmetisrétt – hádegisverður
- Ferskan nýpressaðan ávaxta/grænmetissafa
- Millimálabita s.s. grænmeti eða ávexti
- Súpu eða annan hollusturétt – kvöldverður
- snarl s.s. múslí, hnetur eða þurrkaða ávexti – borða milli mála þegar ykkur langar í einhvern bita
- lítinn sætan en hollan bita - eftirréttur
- Verð 5450 kr
Hægt er að kaupa til viðbótar auka hádegis- eða kvöldverð fyrir fjölskylduna, vinnufélagana eða aðra sem ykkur þykir vænt um.
Léttari lund, dýpri svefn, hreinni og bjartari húð…
Ef þið borðið hreinan og hollan mat eflist ónæmiskerfið og það verður auðveldara að ná kjörþyngd en það er einungis hluti af árangrinum. Þið munið líka fljótt taka eftir léttari lund, betri og dýpri svefni, hreinni og bjartari húð, tærari augum og minni stoðkerfisverkjum.
Það sem þið svo sjáið ekki berum augum en gerist engu að síður innra með ykkur er að æðar verða hreinni, bólgur minnka í líkamanum, öll samskipti frumanna verða skýrari og minna verðum um “mistök” frumanna sem eru alltaf undanfari krabbameina. Genin okkar segja til um hvaða sjúkdóma við höfum “hæfileika” til að þróa með okkur en lífsstíllinn ræður því hvort við þróum þessa sjúkdóma með okkur og leyfum þeim að ná tökum á okkur. Betri heilsa er því okkar val.

