Hreinsandi mataræði (detox)
Happ hreinsandi matarpakki inniheldur
- 2 nýpressaða ávaxtasafa og grænmetissafa
- hreinsandi grænt te
- salat eða annan ferskan hádegisverð
- millimálabita
- léttan kvöldverð
- Verð 5130 kr
Með þessu er mikilægt að drekka mikið af vatni og borða ekkert eftir kl.19. Á kvöldin má drekka sítrónuvatn eða te ef þið finnið fyrir svengd.
Hreinsandi matarpakkar Happ eru hugsaðir fyrir þá sem vilja hreinsa líkamann af óæskilegum aukaefnum og eru að breyta mataræði sínu og tileinka sér nýjan og bættan lífsstíl. Hreinsun er ferli sem takmarkar inntöku aukaefna í líkamann og ýtir undir losun óæskilegra efna úr líkamanum. Á þennan hátt sendum við líkamann í örlítið “frí” og gefum honum tíma og svigrúm til að vinna úr og losa sig við óæskileg aukaefni sem hafa hlaðist upp og eru jafnvel farin að valda þér óþægindum og kvillum.
Líkaminn kemur endurnærður úr fríinu og fullhlaðinn orku.

