Matur sem stuðlar að heilbrigði

Flestallir langvinnir sjúkdómar eiga sameiginlega rót. Einkennin eru vissulega margbreytileg og meðferðir þeirra líka en það eru nokkur atriði sem tengja þessa sjúkdóma saman og leiðin til að koma í veg fyrir að þeir nái sér á strik í líkamanum er falin í lífsstíl okkar.

Með langvinnum sjúkdómum / lífsstílssjúkdómum er átt við:

  • Hjarta- og æðasjúkdóma
    • Hjartaáföll
    • Kransæðastíflur
    • Blóðtappa
    • Háþrýsting
  • Krabbamein
  • Sjálfsofnæmissjúkdóma
    • MS
    • Rheumatoid Arthritis (liðagigt)
    • Skjaldkirtilsofvirkni / vanvirkni
    • Sykursýki I
    • Lupus
  • Offitu
  • Sykursýki II
  • Beinþynningu
  • Heilahrörnunarsjúkdóma s.s. alzheimers
  • Augnsjúkdóma
  • Nýrnasjúkdóma

Allir þessir sjúkdómar þrífast í bólguástandi í líkamanum. Það má því segja að langvinn bólga sé sjúkdómsvænt ástand í líkamanum. Því skiptir miklu máli að skapa basískt ástand í líkama okkar til að stuðla að heilbrigði. Sýrustig í krabbameinsæxlum er t.d. súrara en í heilbrigðum vefjum líkamans.

Það sem veldur basískum / bólgueyðandi áhrifum:

  • Grænt grænmeti s.s. spínat, klettasalat, mynta, basil, kóríander, steinselja og annað dökkgrænt kál
  • Sítrónur
  • Sellerí
  • Avocado
  • Tómatar
  • Vatnsmelóna
  • Brokkólí
  • Agúrka
  • Flest annað grænmeti
  • Fræ s.s. hörfræ, sesamfræ, graskersfræ o.s.frv
  • Möndlur
  • Hreyfing
  • Líkamleg áreynsla
  • Hugarró
  • Jákvæðni
  • Gleði og hlátur
    • Nú vitið þið af hverju hlátur lengir lífið :)

Það sem veldur súrum áhrifum í líkamanum:

  • Sykur
  • Gervisæta
  • Sætindi
  • Kex
  • Kökur
  • Dýraprótein
    • Rautt kjöt
    • Svínakjöt
    • Kjúklingur
    • Flest fiskmeti
  • Mikið unninn matur
  • Kúamjólkurvörur
  • Gosdrykkir
  • Kaffi
  • Hreyfingarleysi
  • Neikvæðar hugsanir
  • Hjálparleysi
  • Sektarkennd
  • Stress, sérstaklega langvarandi stress

Þetta er auðvitað ekki tæmandi listi en gefur ykkur einhverja hugmynd um úr hverju Happ maturinn er gerður.

Ekki er nauðsynlegt að borða eingöngu basamyndandi mat heldur er talið gott ef 75% fæðunnar kemur úr þessum flokki.

Fiskur, t.d. villtur lax inniheldur omega-3 fitusýrur sem eru nauðsynlegar fyrir okkur og er því hollur og góður jafnvel þó hann sé ekki basamyndandi. Við ættum því að forðast að hugsa um allan mat að hann verði að vera basískur en muna eftir að borða meirihluta fæðunnar úr basíska flokknum.

Bestu kveðjur,
Lukka